Gleði og fordómaleysi í dúr og moll

Hinsegin kórinn er litríkasti, hressasti og skemmtilegasti kór landsins – án gríns!

UM HINSEGIN KÓRINN

Hinsegin kórinn var stofnaður síðsumars 2011 og hefur vaxið og dafnað allar götur síðan.

Markmið kórsins er að vera fordómalaus vettvangur fólks til að hittast og njóta söngs saman; vinna að þátttöku hinsegin fólks í menningarlífinu; vera jákvæð fyrirmynd og stuðla að sýnileika hinsegin fólks.

Öll velkomin
Hinsegin kórinn mismunar hvorki á grundvelli kynhneigðar né kynvitundar og er öllum opinn að undangengnum raddprófum sem að jafnaði eru haldin við upphaf haust- og vorannar.

Kórinn leggur áherslu á fjölbreytt lagaval og líflega framkomu, en frá stofnun hefur kórinn haldið fjölmarga sjálfstæða tónleika en auk þess komið fram á ýmsum viðburðum. Þar má nefna opnunarhátíðir Hinsegin daga í Reykjavík og Faroe Pride í Þórshöfn í Færeyjum auk þess að koma fram í afmælum, á vinnustaðaskemmtunum og víðar.

Fjölbreytt verkefni
Í júní 2014 tók kórinn þátt í Various Voices, alþjóðlegu kóramóti hinsegin kóra í Dublin á Írlandi, en kórinn hefur sett sér það viðmið að syngja utan landssteinanna að lágmarki annað hvert ár. Sumarið 2015 fór kórinn til London og söng sem gestakór á tónleikum Pink Singers, hinsegin vinakórs í London og tók þátt í norrænu kóramóti í Helsinki í september 2017. Kórinn hélt svo enn og aftur á Various Voices vorið 2018. Kóramótið var haldið í München Þýskalandi og vakti kórinn mikla lukku meðal gesta.

Comments Box SVG iconsUsed for the like, share, comment, and reaction icons
It’s official 
Hinsegin kórinn mun halda næsta Queertune!
Sjáumst í Reykjavík 🇮🇸
///
The Reykjavík Queer Choir will host the next Queertune!
See you in Reykjavík 🇮🇸

It’s official Hinsegin kórinn mun halda næsta Queertune!Sjáumst í Reykjavík 🇮🇸///The Reykjavík Queer Choir will host the next Queertune!See you in Reykjavík 🇮🇸 ... See MoreSee Less

07.06.25

Comment on Facebook

Yes Yes Yes! We are already looking forward to going to Iceland!

We’ll be there!

Yes! We are looking so much forward to visiting Iceland ♥️🧡💛💚💙💜

I’m so glad for this! Looking for to come to Island and Reykjavik ❤️

Jibbíjei!!!

That will be so great 🏳️‍🌈🏳️‍🌈🏳️‍🌈 and thanks for always being up to visit us despite the distance❤️

Æði! Vá hvað það er spennandi!

Nei vá en geggjað!!

Til hamingju ❤️

Vi glæder os!!!

👏

👏👏💃💃

Huzzah!! 👍👏👏👏

View more comments

Kæru vinir!
Hinsegin kórinn leggur nú land undir fót og stefnir til kóngsins Kaupmannahafnar!
Við ætlum að syngja á tvennum tónleikum og vonumst til að sjá sem flesta erlenda vini okkar þar.
Hér eru allar helstu upplýsingar – sjáumst í syngjandi stuði!

🇬🇧 English version:
Dear friends!
The Reykjavík Queer Choir is heading abroad – destination: Copenhagen!
We’ll be performing in two fabulous concerts and hope to see many familiar (and new!) faces.
Find all the details here – come join us for a celebration in song!

Kæru vinir!Hinsegin kórinn leggur nú land undir fót og stefnir til kóngsins Kaupmannahafnar!Við ætlum að syngja á tvennum tónleikum og vonumst til að sjá sem flesta erlenda vini okkar þar.Hér eru allar helstu upplýsingar – sjáumst í syngjandi stuði!🇬🇧 English version:Dear friends!The Reykjavík Queer Choir is heading abroad – destination: Copenhagen!We’ll be performing in two fabulous concerts and hope to see many familiar (and new!) faces.Find all the details here – come join us for a celebration in song! ... See MoreSee Less

04.06.25

Comment on Facebook

Wish we could be there!

Góða ferð og gangi ykkur sem best

We’ll be cheering from Australia!

Áfram þið 👏👏

Regnboginn heilsar okkur á tónleikadegi!
//
The rainbow greets us on concert day

Regnboginn heilsar okkur á tónleikadegi!//The rainbow greets us on concert day ... See MoreSee Less

08.05.25

Comment on Facebook

Dásamlegt - og mér sýnist hann meira að segja tvöfaldur! <3

Miðasala í fullum gangi á tix.is

//

Tickets are sold on tix.is

Miðasala í fullum gangi á tix.is//Tickets are sold on tix.is ... See MoreSee Less

22.04.25
Load more

KÓRSTJÓRN

Helga Margrét Marzellíusardóttir
Kórstjóri

Nánar um Helgu Margréti

Halldór Smárason
Píanóleikari

Nánar um Halldór

STJÓRN

VIÐ ERUM Á INSTAGRAM

#hinseginkorinn / #reykjavikqueerchoir

This error message is only visible to WordPress admins

Error: No posts found.

Make sure this account has posts available on instagram.com.

VERTU MEÐ!

Við í Hinsegin kórnum erum alltaf að leita að fleiri vinum – hvort sem það eru vinir sem vilja syngja með okkur eða hlusta á okkur. Ef eitt eða fleiri atriði hér að neðan passa við þig, þá ættir þú að sækja um hið snarasta!

  • Lagvisslítið sem ekkert kvartað þegar þú syngur í sturtu

  • Félagsverafinnst allskonar fólk skemmtilegt

  • Gleðispreðariþað er pláss fyrir allskonar gleðigjafa!

HVERNIG RÖDD ERT ÞÚ?

Sópran er efsta rödd kórsins sem syngur þar af leiðandi alla háu tónana.

Alt er efri millirödd í kór, hún syngur því hærra en tenór en ekki jafn hátt og sópran.

Tenór er neðri millirödd. Tenórar syngja því á milli alt og bassa.

Bassi er neðsta rödd kórsins og passar að neðstu tónarnir komist til skila.

Hafa samband

Sigrún

Formaður

Helga Margrét

Kórstjóri


Jóhann

Gjaldkeri